|
Um Raufarfell 2
Raufarfell 2 er lítið býli undir Eyjafjöllum á Suðurlandi. Á Raufarfelli hefur verið stunduð hrossarækt frá því snemma á 20. öld. Ræktunin byggir á gömlum þekktum stofnum úr sveitinni m.a. hrossum af gamla Núpakotsstofninum. Í seinni tíð hafa hrossin blandast stóðhestum af öðrum svæðum á landinu. Áhersla er lögð á falleg og geðgóð fjölskyldu- og reiðhross.
Fjölbreytileiki lita er nokkur í ræktuninni og eru mörg hrossin blesótt eða stjörnótt og þó nokkur skjótt. Blesótt hross eru til með ýmsum litum, t.d. rauðblesótt, bleikblesótt, bleikálótt blesótt, móálótt blesótt, brúnblesótt og jarpblesótt.
Máni (IS1987186003) frá Raufarfelli 2 var mikið notaður um tíma og mörg hrossanna eiga ættir að rekja til hans. Hann var undan Degi frá Kjarnholtum. Af stóðhestum sem notaðir hafa verið í seinni tíð má nefna Auð (IS2002187004) frá Kjarri, Straum (IS2002125421) frá Breiðholti og Fjarka (IS2004125421) frá Breiðholti.
Hrossin okkar fá mjög gott uppeldi. Þau eru ormahreinsuð reglulega, skráð í Worldfeng gagnagrunninn og folöldin eru örmerkt.
|