|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Raufarfell 2 er lítið býli undir Eyjafjöllum á Suðurlandi. Á Raufarfelli hefur verið stunduð hrossarækt frá því snemma á 20. öld. Ræktunin byggir á gömlum þekktum stofnum úr sveitinni m.a. hrossum af gamla Núpakotsstofninum. Í seinni tíð hafa hrossin blandast stóðhestum af öðrum svæðum á landinu. Áhersla er lögð á falleg og geðgóð fjölskyldu- og reiðhross.
Fjölbreytileiki lita er mikilvægur í ræktuninni okkar og eru mörg hrossin blesótt og þó nokkur skjótt. Blesótt hross eru til í ýmsum óalgengum samsetningum einsog t.d. bleikblesótt, bleikálótt blesótt, móálótt blesótt, brúnblesótt og jarpblesótt.
Máni (IS1987186003) frá Raufarfelli 2 var mikið notaður um tíma og mörg hrossanna eiga ættir að rekja til hans. Hann var undan Degi frá Kjarnholtum. Af stóðhestum sem notaðir hafa verið í seinni tíð má nefna Auð (IS2002187004) frá Kjarri, Straum (IS2002125421) frá Breiðholti og Fjarka (IS2004125421) frá Breiðholti.
Hrossin okkar fá mjög gott uppeldi. Þau eru ormahreinsuð reglulega, skráð í Worldfeng gagnagrunninn og folöldin eru örmerkt.
Hestar til sölu eru að finna hér undir flokknum hestar
Raufarfell